Britney Spears: Femme Fatale (útg. 2011 - 9/10)
Ekki er ætlunin hér að fara yfir feril Britney Spears, en hann hefur einkennst af frægð, frama og fríki. Eftir að hafa farið alvarlega niður á við í vinsældum og áliti virðist prinsessan í poppinu vera komin á beina braut aftur. Þessi nýja plata er dæmi um það. Ég er að vísu svolítið í "pí__poppinu" og var spenntur fyrir þessari afurð. Þetta er plata sem rennur þægilega í gegn.
Britney er sjálf
ekkert að semja lögin sem hún syngur og persónulega finnst mér hún ekkert besti söngvari í heimi, langt því frá. Eitthvað
virðist unnið með rödd hennar (með einhverjum vél-tölvu-fítusum ... 'processed vocals' heitir það á enskunni) en mér hefur
það fundist vera gert áður á hennar plötum. Þetta er það sem helstu gagnrýnendur hennar segja (hún syngur "bara" og þetta
'processed vocals'-dæmi) en það sem ég hlusta eftir er laglínan fyrst og fremst, og svo getur textinn verið afar nauðsynlegur. "Hold it against me" er dæmi
um skemmtilegan (og tvíræðan) texta. Annars eru flestir textarnir svona hefðbundnir popptextar. I love you ... blue ... too.... do ... o.s.frv. Tilraun Britney með
"dubstep" á þessari plötu tekst fullkomlega!
Ég sagði að mér fyndist Britney ekki vera besti söngvari í heimi, en hún er líka langt frá því að vera sá versti. Það er líka eitthvað sérstakt við hennar rödd finnst mér og því sé ég ekki aðrar söngkonur syngja þessi lög jafn skemmtilega. Að vísu poppar Katy Perry í hugann á mér og gaman væri að heyra aðrar söngkonur syngja lögin, en það gerist varla.
Þetta er ekkert tímamótaverk í þeim skilningi að eftir 20 ár munu poppfræðingar hefja þessa plötu upp til skýja. Þetta er plata sem mun rísa hátt árið 2011 og kannski eitthvað eftir það. Verður án efa á topp-10 lista hjá mér yfir skemmtilegustu plötur ársins en eitthvað segir mér að gagnrýnendur verði mér ekki sammála.
Næsthæsta einkunn, 9 af 10 ... alls ekki svo slæmt ;-) Læt hér fylgja með myndband af laginu "Till the world ends":

