Tucker & Dale vs Evil

Tucker & Dale vs Evil, Kanada 2010 - (8/10) Ef þið sjáið framhlið á mynddiskahulstri sem sýnir tvo skuggalega náunga með helming af líki á milli sín,

Flýtilyklar

Tucker & Dale vs Evil

Tucker & Dale vs Evil, Kanada 2010 - (8/10)

Ef þið sjáið framhlið á mynddiskahulstri sem sýnir tvo skuggalega náunga með helming af líki á milli sín, þá gætuð þið strax hugsað: "Hey! Þetta er hrollvekja - ekki fyrir mig!" eða "Hey! Þessi lítur vel út!!!" Þegar ég sá hulstrið þá hugsaði ég strax með mér að þetta væri svona spennandi hrollvekja, en eftir að hafa séð myndina þá er þetta með fyndnari hrollvekjum sem ég hef séð.

Tucker & Dale vs Evil er frábærlega fyndin hrollvekjaÞað má kannski ekki segja of mikið frá söguþræðinum, en í grófum dráttum er hann þannig að Tucker og Dale eru misskildir sveitalubbar sem vilja vel. Á vegi þeirra verður hópur ungmenna sem ætlar að skemmta sér í fríinu sínu en fríið breytist bráðum í hrylling sem enginn virðist ráða neitt við. Líkin hrannast upp og ekki virðist lögreglan geta hjálpað en óhætt er að segja að það sé skemmtilegt "tvist" á þessu hefðbundna hryllingsmyndaformi.

Alan Tudyk hafa menn séð í myndum eins og Dodgeball og Transformers: Dark of the moon, en Tyler Labine er ekki eins þekktur. Þessir tveir leikarar eru stórkostlegir í sínum hlutverkum (Tucker og Dale) og bera myndina gjörsamlega. Aðrir leikarar standa sig ágætlega, Katrina Bowden sem Allison er voða sexí og sæt og hún gæti birst í fleiri Hollywood-myndum á næstu árum.

Það sem heillar mig mest við myndina er hið skemmtilega og bráðfyndna handrit! Já, þetta er gamanmynd og hrollvekja í einum pakka. Það er alla vega ekki oft sem maður hlær sig máttlausan þegar ungmenni hljóta "grimman" dauðdaga :-)

Umhverfið er afskaplega hryllingsmyndalegt: skógur, stöðuvatn og vafasamur kofi. Niðurstaðan kemur hins vegar á óvart. Ég vonast eftir að sjá fleiri myndir í leikstjórn Eli Craig, því þessi á allt lof skilið!

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:24
+2.8°SSA 1 m/s
  • fallegur dagur

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.  HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is