Død snø

Død snø (Dead Snow), Noregur 2009 - (9/10) Hryllingsmyndir / hrollvekjur hafa ávallt vakið áhuga minn. Hrollvekjur á öðrum tungumálum en ensku hafa ekki

Flýtilyklar

Død snø

Død snø (Dead Snow), Noregur 2009 - (9/10)

Hryllingsmyndir / hrollvekjur hafa ávallt vakið áhuga minn. Hrollvekjur á öðrum tungumálum en ensku hafa ekki endilega ratað mikið í tækið hjá mér en síðustu misseri hefur þetta verið að breytast. Á skömmum tíma sá ég myndir eins og Naboer og Fritt vilt 1-2 og skemmti mér mikið. Það var því spenningur kominn í mig þegar ég stakk Død snø í tækið og hafði eiginkonuna með mér í áhorfinu.

Þetta er án efa með skemmtilegustu hrollvekjum sem ég hef séð. "Snilldin ein" voru ummæli sem komu í huga minn eftir að áhorfi var lokið. Ég kannast ekkert við neitt af þessum leikstjórum eða leikurum, en það er kannski málið ... maður fær þarna ferskan blæ í annars afar sterílan flokk - og viti menn: útkoman er yndisleg hrollvekja með miklum blóðsslettum og húmor og hlátrasköllum. Þetta fer ekki alltaf vel saman og dettur mér helst í hug myndir eins og Scream sem voru fyndnar (alla vega mynd númer eitt) en höfðu horror-dæmið með sér líka.

Dead Snow er enska heiti myndarinnarOg þegar þú ert að tala um hrollvekju með nasista-uppvakningum ... þá ertu í virkilega góðum málum. Auðvelt hefði verið að klúðra þessu, en leikstjórinn og handritshöfundurinn Tommy Wirkola gerir það alls ekki.

Söguþráðurinn er á þá leið að ungir krakkar koma saman hátt uppi í norskum fjöllum, á mjög eyðilegum stað, til að skemmta sér og skíða og sleðast. Fljótlega fer þó að bera á dularfullum verum þarna í snjóugum fjöllunum og nasista-uppvakningarnar herja á krakkana, sem reyna að komast undan eða berjast við þá. Tekst þeim að flýja eða lenda þau í blóðugum dauðdaga?? Þið verðið að sjá myndina til að fá svarið við því.

Sterkasti hluti myndarinnar er handritið; húmor og spenna, sem er sannarlega komið til skila með skemmtilegum persónum í höndum óþekktra en virkilega skemmtilegra leikara. Þessi mynd minnti svolítið á Fritt vilt myndirnar en var miklu betur unnin og miklu skemmtilegri.

Það er því með mikilli ánægju sem ég gef þessari mynd 9 af 10 í einkunn og hún er nær því að hækka í 10 heldur en að lækka. Þetta er mynd sem allir unnendur hryllingsmynda ættu að sjá, sérstaklega ef þeir vilja smá "tvist" í annars sterílan flokk!

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:23
+2.8°SSA 1 m/s
  • meira nymeti

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.  HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is