Þjónusta

Velkomin í barnadeildina! Hér er alltaf mikið um að vera - Fylgist vel með :-) Boðið er upp á skoðunarferðir um safnið og sögustundir fyrir hópa.

Flýtilyklar

Barnastarf

Velkomin í barnadeildina!

Hér er alltaf mikið um að vera - Fylgist vel með :-)

myndir barnastarf amtsbókasafn

Boðið er upp á skoðunarferðir um safnið og sögustundir fyrir hópa. Tilgangurinn með  safnkynningum er að börnin læri að þekkja almenningsbókasafnið sitt. Hvað þar er að finna og hvaða þjónusta er í boði. Hægt er að koma með bekki í almennar heimsóknir í tengslum við þema- og ritgerðavinnu

Velkomið er að hafa samband við barnabókavörð vegna heimsókna og sögustunda í síma 460-1257 eða senda póst á netfangið herdisf@akureyri.is

Sögustund

Sögustundir eru alla fimmtudaga  frá september  fram í maí og hefjast þær kl. 16:00. Við lesum saman og stundum er spilað, púslað og föndrað.

Einu sinni í mánuði er sögustund á laugadegi kl. 14:00. Hún er alltaf auglýst sérstaklega hér og á facebook.

Hólmasól í heimsókn

 Sögustund janúar 2012

Fimmtudaginn 26. janúar kl.16:00 er vina- og sögustund. Við lesum um vináttu og gerum saman vinagogga

Vinakveðja, Herdís Anna barnabókavörður og starfsfólk Amtsbókasafnsins


Fréttamolar

 

25.01.12 - Jólasögustundin okkar var virkilega skemmtileg - Hér er smá upprifjun :

23.01.12 - Ánægjulegt var hve margir tóku þátt í jólagetrauninni okkar, 132 skiluðu inn lausnum. Vinningshafar eru:

Óliver Ísak Ólason 9 ára og Elísabet Ásta Ólafsdóttir 10 ára.

Við óskum þeim innilega til hamingju!

 

11.01.12 - Þátttakan í jólagetrauninni var mikil og við tilkynninum vinningshafana í næstu viku!

 

02.01.12 - GLEÐILEGT ÁR! - Sögustund fimmtudaginn 5. janúar 2012 fellur niður vegna veikinda


Myndir úr jólasögustundinni eru hér :

Jólaskrautið er komið upp :-)

Dregið var í bangsagetraun og vinningshafar voru:
Theódór Gísli 3 ára og Sía 5 ára.

Hvað eru margir gúmmíbangsar í krukkunni? Bangsarnir voru 142!
Vinningshafi er Ester Katrín 

Við óskum þeim til hamingju með verðlaunin og þökkum öllum fyrir þátttökuna :-)

myndir barnastarf amtsbókasafn

Bókaverðlaun Barnanna 2011

Niðurstöður á Akureyri

1. Ertu Guð afi?
2. Forngripasafnið
3. Stóra Disney matreiðslubókin
4. Dagbók Kidda Klaufa 2
5. Þokan
6. Ripley's - Ótrúlegt en satt!
7. Skúli Skelfir fer í frí
8. Aþena: Hvað er málið með Haítí?
9. Óvættaför 5: Hrímþursinn Nanúk
10. Jóakim Aðalönd - Ævi og störf.

 Hérna getur þú séð úrslitin á landsvísu

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
þriðjudagur 07.02. 2012
kl. 07:05
+SSV 2 m/s
  • stofngjorningur

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: kl. 11:00-16:00
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.     HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is