Amtsbókasafnið

Amtsbókasafnið var stofnað árið 1827 af Grími Jónssyni amtmanni á Möðruvöllum. Aðsetur safnsins var í Laxdalshúsi fyrstu 20 árin og fluttist síðan milli ýmissa húsa og var meðal annars til húsa í Ráðhúsi Akureyrarkaupstaðar í Búðargili og Samkomuhúsinu.

Amtsbókasafnið

Jólasveinar komnir til Amtsbókasafnsins

höfðingleg gjöf frá Jólagarðinum!!

Síðustu ár, nánar tiltekið í desember ár hvert, hefur Amtsbókasafnið sýnt jólasveinana flottu frá Jólagarðinum í sýningarborðum eða -skápum. Árið 2008 er engin breyting þar á, en okkur á Amtsbókasafninu barst höfðingleg gjöf frá Benedikt Grétarssyni í Jólagarðinum:

Þessir frægu jólasveinar eiga nú 10 ára afmæli í ár, og í tilefni þess ákvað Benedikt að færa okkur jólasveinana þrettán, ásamt Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn, að gjöf.

Þessi gjöf er nú komin á góðan stað í sýningarskáp nálægt afgreiðslu Amtsbókasafnsins og verður þar fram yfir 6. janúar á næsta ári.

Amtsbókasafnið sendir Benedikt og Jólagarðinum kærar jólakveðjur og þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.




Fréttalisti

Sjá eldri fréttir



Ýmislegt

Tímarit.is
Hér er hægt að lesa og fletta í yfir 230 blöðum og tímaritum frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi

Hvar.is
Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum

Gegnir
Samskrá íslenskra bókasafna. Hægt að sjá hvaða titlar eru til og hvar, t.d. hér á Amtsbókasafninu á Akureyri


Bookmark and Share

Dagskrá


Dagskrá


Afgreiðslutími í sumar (1.6.-31.8. 2010)

Mán

10:00-19:00

Þrið

10:00-19:00

Mið

10:00-19:00

Fim

10:00-19:00

Fös

10:00-19:00

Lau

Lokað

Sun

Lokað


Útlit síðu:



Þetta vefsvæði byggir á Eplica