Gleðilega verslunarmannahelgi!
Ein með öllu á fullu!
Kæru safngestir og aðrir og allir!
Við á Amtsbókasafninu óskum ykkur gleðilegrar verslunarmannahelgar og vonandi hafið þið það gott og skemmtilegt um helgina. Fyrir utan Amtið verður tekin smá JF-leikfimi og bærinn er skrýddur rauðum hjörtum ... stemningin er yndisleg eins og ávallt á Akureyri. Og þegar helgin er búin ... þá komum við öll á Amtsbókasafnið og fáum okkur að lesa ... eða horfa ... eða borða á Amts-Café ... nú, eða bara til að eiga stefnumót! Við opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst 2008, kl. 10:00! Verið þar eða verið ferningur!
Amtsbókasafnið er staðurinn!



