Eyfirskur safnadagur - Amtsbókasafnið
líf og fjör í Eyjafirði, 3. maí 2008, kl. 11:00-17:00

Líkt og fyrir ári síðan standa söfn í Eyjafirði að sameiginlegum "safnadegi". Hvert safn er með spennandi dagskrá og er um að gera að eyða deginum í að kynnast söfnunum öllum. Til þess að gera fólki auðveldara fyrir að ferðast á milli safnanna, þá eru sérstakar safnarútur og strætó sem keyra á milli - öllum að kostnaðarlausu. Strætóinn sem fer á milli safnanna hér á Akureyri byrjar frá Nætursölunni kl. 13, 14, 15 og 16 (síðasta ferð) og er áætlun hans eftirfarandi á hverjum klukkutíma:
| Koma | Brottför | |
|---|---|---|
| Nætursalan/miðbær | 13:00 | |
| Nonnahús/Minjasafnið | 13:05 | 13:08 |
| Iðnaðarsafnið | 13:10 | 13:13 |
| Flugsafnið | 13:15 | 13:20 |
| Nætursalan | 13:30 | 13:40 |
| Amtsbókasafnið | 13:43 | 13:45 |
| Davíðshús | 13:48 | 13:50 |
| Sigurhæðir og Listasafnið | 13:55 |
og svo hefst næsti hringur kl. 14:00 o.s.frv.

Amtsbókasafnið
Í tilefni dagsins munu útlán á tónlist og kvikmyndum vera ókeypis. Einnig verður boðið upp á leiðsögn um safnið kl. 13:45 og 15:45. Athugið, að Amts-Café verður opið!



