Nýtt - Nýtt

Amtsbókasafnið á Akureyri

Flýtilyklar

  • Valmynd
  • Meginmál

Brauðmolar

Amtsbókasafn / / Nýtt - Nýtt

Nýtt - Nýtt

  • 63 stk.
  • 12.07.2012

« Fyrri | 1 | 2 | Næsta »
Þekktu bæinn þinn
Konur gerðu garðinn
Fimmtíu gráir skuggar er rómantísk, áleitin og ómótstæðileg skáldsaga sem þú leggur ekki frá þér
fyrr en að lestri loknum. Og upp frá því situr hún í þér um ókomna tíð . . . Í miðjum lokaprófum í
háskólanum neyðist Anastasia Steele til að gera hlé á lærdómnum og taka viðtal við forríkan viðskiptajöfur fyrir
stúdentablaðið. Henni til furðu er Christian Grey ungur og glæsilegur, og heillar hana við fyrstu sýn þó að hann virðist bæði
hrokafullur og gersamlega ósnertanlegur. Fljótlega kemur í ljós að hrifningin er gagnkvæm. En Christian Grey er ekki allur þar sem hann er séður
og sumt sem hann þráir getur Anastasia varla ímyndað sér. Eftir því sem eldheitt samband þeirra þróast uppgötvar hún
æði margt um sínar eigin þrár og þau myrku leyndarmál sem Grey býr yfir . . . Fimmtíu gráir skuggar er fyrsta bók E L James en
Fifty shades-þríleikur hennar hefur notið slíkrar hylli lesenda um allan heim að fá dæmi eru um annað eins. Ásdís Guðnadóttir
þýddi.
Eldhús ömmu rún
Himneskar bollakökur
Litla lundapysjan
Hermiskaði
Létta leiðin
Jacob Hunt er unglingspiltur með Aspergerheilkenni. Félagsleg samskipti eru ekki hans sterka hlið en hann hefur brennandi áhuga á réttarmeinafræði og er
með lögreglutalstöð í herberginu sínu. Hann mætir því iðulega á vettvang glæpa og gefur lögreglunni góð
ráð. En dag einn finnst leiðbeinandi hans myrtur og Jacob er yfirheyrður. Hann á bágt með að tjá sig, horfist ekki í augu við
þá sem yfirheyra hann og kækir hans og hegðun virðast óviðeigandi – merkir það að hann sé sekur um glæp? Reglur hússins
er áhrifamikil saga um það að vera öðruvísi: um harkalega og óhjákvæmilega árekstra milli þeirra sem fylgja óskrifuðum
reglum samfélagsins og hinna, sem hvorki þekkja né skilja þessar reglur. Jodi Picoult er bandarískur höfundur sem hefur skrifað fjölda
geysivinsælla og eftirminnilegra skáldsagna. Þrjár þeirra hafa komið út á íslensku, Nítján mínútur, Á
ég að gæta systur minnar? og Brothætt.
Jesúsa
Sá hlær best...! sagði pabbi
Kynferðislegar fantasíur geta verið dónalegar, hamslausar og forboðnar en líka rómantískar og blíðar. Þær birtast hér
í fjölbreytilegu formi – í sögum, textabrotum og hugleiðingum um eldheita ástríðufundi, skyndikynni og stolnar stundir. Sumt gæti gerst hvar
sem er, annað við óvæntar og séríslenskar aðstæður – í miðbæ Reykjavíkur eða úti í villtri
íslenskri náttúru. Bókin geymir 51 fantasíu fyrir konur til að njóta, forvitnast um og samsama sig við. Þær voru valdar úr
fjölda fantasía sem voru sendar inn nafnlaust. Sumar eru kannski kunnuglegar, aðrar sem fjarlægur draumur – en allar eru þær uppfullar af erótík
og spennu. Hildur Sverrisdóttir ritstýrði.
Unglæknirinn Natalía heldur í leiðangur á Balkanskaga til að hjálpa munaðarleysingjum og stríðshrjáðu fólki.
Áralangri styrjöld er lokið en sárin hafa ekki gróið og leyndardómarnir eru margir og grimmir. Á ferð sinni fréttir hún að afi
hennar hafi dáið í afskekktu þorpi en enginn veit um erindi hans þangað. Natalía fer að leita sannleikans og rifjar um leið upp sögur afa
síns, sögurnar af manninum sem gat ekki dáið, af tígrinum sem slapp úr dýragarði og hélt íbúum lítils þorps í
greipum skelfingar og af mállausu stúlkunni sem elskaði tígurinn. En hvað er saga og hvað raunveruleiki? Téa Obreht fæddist 1985 í Serbíu
og ólst upp hjá afa sínum, sem var kaþólskur Slóveni, og ömmu, sem var Bosníumúslimi. Síðar flutti hún til
Bandaríkjanna og skrifaði Konu tígursins sem er byggð á fólkinu hennar, þjóðtrú og sögnum sem hún ólst upp við.
Obreht er yngsti höfundur sem unnið hefur hin virtu Orange-verðlaun. Guðni Kolbeinsson þýddi.
Sunnudagskökur allan ársins hring
Þegar fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna kemur í heimsókn til Noregs hefst undarleg atburðarás. Forsetinn hverfur og svo virðist sem heimsveldi
Bandaríkjamanna sé ógnað og jafnframt konungdæmi noregs á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Flokkur lögreglumanna kemur
frá Bandaríkjunum til að rannsaka máli ásamt norskum starfsbræðrum sínum en þá vakna ýmsar spurningar um umsjón og
yfirráðasvæði ngvar Stubo tekur þátt í rannaókninni sem sérstakur aðstoðarmaður Bandaríkjamanna en að þessu sinni
er aðkoma Inger Johanne að málinu óhefðbundin Málin taka sífellt óvænta stefnu og þræðirnir liggja víða, ýmis
fjölskyldu og ástamál koma við sögu auk þess sem hriktir í pólitískum stoðum víða um heim Anne Holt er meðal virtustu
glæpasagnahöfunda á Norðurlöndum og seljast bækur hennar í milljónum eintaka á fjölmörgum tungumálum.
Anna í Grænuhlíð
Vetrarlokun
23 atriði um kapítalisma sem ekki er sagt frá
Af algerri tilviljun komast Dicte Svendsen og vinkona hennar hjá bráðum bana þegar tvær sprengjur springa í miðborg Árósa, önnur í
sólbaðsstofu þar sem þær ætluðu að hittast og hin í bifreið umdeilds stjórnmálamanns. Í annarri sprengingunni ferst ung,
fötluð kona og rannsókn á vettvangi beinir grun að syni Dicte sem er nýsloppinn úr fangelsi. En hann er horfinn, sporlaust. Leitin að honum leiðir
Dicte á ókunnar háskaslóðir í nútíð og fortíð. Með góðu eða illu er talin besta saga Elsebeth Egholm um
rannsóknarblaðakonuna Dicte Svendsen. Sjálf er Egholm ókrýnd glæpasagnadrottning Dana og haslar sér nú völl í sjónvarpi;
meðal annars er unnið að gerð sjónvarpsþátta eftir sögunum um Dicte Svendsen. Auður Aðalsteinsdóttir þýddi.
Salamöndrugátan
Á lögreglustöðinni í Wick, nyrst í Skotlandi, hafði óralengi staðið rispuð flaska með bréfi í. Enginn gaf henni gaum
eða velti fyrir sér hvað orðið þýddi sem mátti lesa gegnum glerið: HJÁLP. Þegar Carl Mørck í Deild Q hjá dönsku
lögreglunni fær flöskuskeytið í hendur telur hann að um barnabrek sé að ræða en því betur sem Assad aðstoðarmaður hans
skoðar velkt skeytið, því betur átta þeir sig á skilaboðum þess, að tveimur drengjum hafi verið rænt á tíunda
áratugnum. En hvaða drengir voru það og af hverju var hvarf þeirra aldrei tilkynnt? Smám saman flækjast Carl og Assad í net gáfaðs og
tilfinningalauss mannræningja – sem reynist enn vera að.
Ingunn er mikils metinn blaðamaður og sérfræðingur í tónlist af öllu tagi. Utan vinnu er hún sólgin í karlmenn og kynlíf en um
leið hrædd við náin tengsl og svik. Þegar hún finnur að áhugi karlmannsins dalar flýtir hún sér að slíta sambandinu til
að verða fyrri til. Einlægasta vináttusambandið á hún við bílinn sinn og hund nágrannans. Anne B. Ragde er vinsæl víða um
lönd fyrir Neshovþríleikinn og Arsenikturninn. Í Næturóskinni skrifar hún um rótlausa nútímakonu sem er alveg viss um að
lífið sem hún lifir geti ekki orðið betra. En er það rétt? Hjalti Rögnvaldsson þýddi.
H. P. Lovecraft er einn af áhrifamestu höfundum hryllingsbókmennta samtímans. Eftir hann liggja fjölmargar smásögur og nóvellur. Hann er talinn vera
einn af sporgöngumönnum furðusagna og mætast í sögum hans hið fantatíska og það hrollvekjandi. Í þessu safni er reynt að draga
upp mynd af höfundarverki hans. Í safninu eru m.a. þýðingar á sögunum Call of Cthulhu og At the Mountains of Madness. Þorsteinn Mar þýddi.
„Nina dró Rinu með sér inn í þröngt kælibúrið, svo harkalega að barnið rakst í hillurnar og kveinkaði sér.
Ógleðin jókst, það var eins og sæt gaslyktin hefði fest í munnholi og hálsi. Hafði hann séð þær? Vissi hann hvar
þær voru? Hún reyndi að hlusta af öllum kröftum en heyrði ekkert annað en andardrátt Rinu – fyrr en eitthvað skall á hurð
kælibúrsins ...“ Þegar Natasha Doroshenko flýr á leið til yfirheyrslu hjá lögreglunni hefst ofbeldisfull atburðarás. Fyrrverandi
sambýlismaður hennar finnst dauður með brotnar hendur rétt eins og eiginmaður hennar í Kiev þremur árum fyrr. Nina Borg trúir ekki að
konan hafi drýgt þessa glæpi og heldur hlífiskildi yfir dóttur hennar. En Natasha er ekki öll þar sem hún er séð og rætur
glæpanna reynast langar og blóðugar; þær teygja sig alveg aftur til Úkraínu á tímum Stalíns ... Dauði næturgalans er
þriðja bók Kaaberbøl og Friis um hjúkrunarkonuna Ninu Borg. Þær fyrri, Barnið í ferðatöskunni og Hægur dauði, hafa notið
gríðarlegra vinsælda.
Þegar Harold Fry skreppur út einn morguninn til að fara með bréf í póst veit hann ekki að hann á eftir að ganga yfir landið þvert og
endilangt. Hann er ekki í gönguskóm. Hann er ekki með kort. Ekki einu sinni farsímann sinn. En hann leggur upp í langa göngu. Til að bjarga lífi
vinkonu sinnar. Rachel Joyce er fjögurra barna móðir og býr í Bretlandi. Hún hefur skrifað yfir 20 útvarpsleikrit fyrir BBC, og leikgerðir og
þætti fyrir sjónvarp. Þetta er hennar fyrsta skáldsaga og hefur setið á breskum metsölulistum síðan hún kom út snemma á
þessu ári. Í þýðingu Ingunnar Snædal.
Virtur lögfræðingur, Nina Bloom, leggur allt í sölurnar til að fá notið þeirrar öruggu tilveru sem hún hefur skapað sér og
dóttur sinni og svífst einskis til að leyna fortíð sinni. En þegar taka á mann af lífi fyrir glæp sem hún veit að hann hefur ekki
framið stendur hún frammi fyrir erfiðu vali. Í fríi í Flórída fyrir löngu kollvarpaði afdrifaríkt atvik lifi hennar og neyddi hana
í felur. Þegar hún hafði fótað sig á ný, eignast góðan mann og fyrsta barnið var á leiðinni komst hún að svo
skelfilegu leyndarmáli að flótti var eina leiðin – flótti upp á líf og dauða. Nú, mörgum árum síðar og í
felum bak við nýtt nafn, storkar hún örlögunum með því að snúa aftur til Flórída til að bjarga saklausum
skjólstæðingi og takast á við þau banvænu öfl sem hún taldi sig hafa sigrast á. James Patterson býður hér upp á
dramatísk átök og óbærilega spennu sem aldrei fyrr. Feluleikur er saga sem enginn leggur frá sér fyrr en að leikslokum. Magnea J.
Matthíasdóttir þýddi.
Í nýstárlegri og ögrandi menningargreiningu tekur Guðni Elísson saman hugleiðingar sínar um góðærisárin. Hann fjallar um
útrás og frjálshyggju, eggjárnafagurfræði, einelti, neyslu og forseta lýðveldisins. Hann ver borgaralega óhlýðni á einhuga
tímum og týnir sér í áleitnum hugleiðingum um mávastell, skötuát, skyggnilýsingar, súludansmeyjar, slagsmál á
Austurvelli og eitthundraðprósent listamannssaur.
Tvö ungmenni í ævintýraleit finna flugvélarflak á botni stöðuvatns í óbyggðum Norður-Svíþjóðar.
Þegar haustar halda þau í köfunarleiðangur til að kanna dularfullt flakið en segja engum frá því hvert ferðinni er heitið. Og þau
snúa aldrei til baka. Þegar lík stúlkunnar finnst mörgum mánuðum síðar hefur lögreglan í Kiruna rannsókn á dauða
hennar. Í litlu þorpi í nágrenninu, þar sem látna stúlkan dvaldist hjá langömmu sinni, býr fjölskylda sem allir óttast;
tveir ofbeldisfullir bræður og aldraðir foreldrar þeirra sem eiga sér myrkari leyndarmál en gengur og gerist. Dauðadjúp er fjórða spennusaga
Åsu Larsson um lögfræðinginn Rebecku Martinsson. Fyrri bækurnar eru Sólgos, sem var valin besta frumraunin í flokki glæpasagna í
Svíþjóð, Blóðnætur, sem hlaut sænsku glæpasagnaverðlaunin, og Myrkraslóð. Eyrún Edda Hjörleifsdóttir
þýddi.
Zlatan Ibramhimovic skipar sess á stjörnuhimni knattspyrnunnar. Á sama tíma er hann þekktur fyrir litríka framkomu sína jafnt utan vallar sem innan. Hann
kemur sjaldan fram í fjölmiðlum en er samt sá sem stærstu fyrirsagnirnar fjalla um. Nú loksins segir Zlatan sögu sína. Réttara sagt
þá segir hann frá lífi sínu af hreinskilni, án þess að blygðast. Í samvinnu við blaðamanninn og rithöfundinn David
Lagercrantz hefur Zlatan skrifað óvenju opinskáa og spennandi sjálfsævisögu – um bernskuna í innflytjandahverfinu Rosengård fyrir utan
Malmö þar sem hann óx úr grasi ásamt fátækum foreldrum sínum frá Bosníu og Króatíu, um vináttu og fjandskap, um
stórliðin sem hann hefur leikið með, um stjörnuveröldina og fjölskyldulífið og um peningabrjálæðið sem er í
alþjóðlegri knattspyrnu. Bókin er vel skrifuð og hittir í mark. Þetta er ævisaga sem nær til allra sem vilja lesa nútímasögu um
Öskubusku, um fátæka strákinn frá Malmö, sem varð einn af ríkustu og goðsagnakenndustu knattspyrnumönnum heims.
„Ég stóð á svölunum og fannst sem bylgjur gengju í gegnum mig alla, ég staulaðist upp stigann með lokuð augu og ríghélt
í myndina sem birtist mér og fór og lagðist á rúmið. Nú var eins og kippir færu um líkamann frekar en bylgjur...Hann var virkilega
kynæsandi þó ég sæi ekkert nema fætur hans...“ Ástarsamband við Guð, er sönn saga sem segir frá nokkrum árum í
lífi höfundarins. Sagan er einlæg, spennandi, fyndin, laus við alla tilgerð og einkar opinská. Hún hefur að geyma einstaka sýn á tilveruna
sem ekki margir hafa og opnar dyrnar fyrir umræðuefni sem margir forðast. Ef þú vilt lesa óvenjulega en sanna sögu sem gefur þér nýja
sýn á daglegt líf, heiminn og Guð, þá er þessi bók fyrir þig. Ingibjörg Torfadóttir er hjúkrunarfræðingur og
þetta er hennar fyrsta bók.
Hugleikur Dagsson er bara alltaf að gera grín að íslenskum dægurlögum. Fyrst í bókinni Íslensk dægurlög, svo í bókinni
Fleiri íslensk dægurlög og nú í bókinni Enn fleiri íslensk dægurlög. Sem er reyndar síðasta bókin í flokknum
því það eru ekki til fleiri íslensk dægurlög. Þau eru búin.
Í Heilsuréttum fjölskyldunnar eru uppskriftir að ljúffengum réttum sem fjölskyldan elskar en bókin er skrifuð fyrir þá sem vilja
bæta mataræði og lífsstíl fjölskyldunnar.
Með gamalt prik í hendi fer ímyndunarafl Steina á flug og töfraheimar opnast þegar hann heldur áleiðis til tunglsins, kastar fyrir fisk eða fer
á bak risaeðlu. Hugmyndarik og skemmtileg bók með einstaklega fallegum og ævintýralegum myndum.
Ný handprjónuð flík eða teppi er einstaklega hlýleg og góð gjöf handa nýfæddu barni, og margar verðandi mæður fyllast
líka löngun til að prjóna á ófædd börn sín. Hlýtt og mjúkt fyrir minnstu börnin er bók fyrir mömmur, ömmur,
vinkonur, frænkur og alla aðra sem langar til að prjóna eitthvað fallegt handa litlu kríli. Uppskriftirnar eru bæði einfaldar og aðgengilegar og í
bókinni er einnig ýmis fróðleikur og góð ráð um margt sem snýr að prjónaskap. • Um 40 uppskriftir að flíkum á
nýbura upp í ársgömul börn • Uppskriftir að tuskudýrum og teppum og smávegis fyrir mömmuna • Prjónakennsla með
einföldum skýringum í máli og myndum • Góð ráð og leiðbeiningar um garntegundir, þvott og fleira
,,Sá sem heldur að ástin sé ör sem fer beinustu leið að skotmarki sínu veit ekki hvað ég er að tala um: allir þessir
krákustígar mistaka sem liðast út og inn um ævi mannsins, okkur verður líka að mistakast til að geta elskað og vera elskuð.”
Rithöfundur býr í íbúð með útsýni yfir fyrri vinnustað sinn við höfnina í Malmö. Hann skrifar bók sem hann er
ekki viss um að hann vilji eða geti skrifað og veltir því fyrir sér hvort hann muni nokkurn tíma sættast við fortíðina. Hann hefur
endurheimt æskuástina, sem hann missti fyrir löngu vegna eiturlyfjaneyslu, en er virkilega hægt að snúa til baka og bæta fyrir gjörðir sínar?
Bjartur gefur út. Höfundur: Kristian Lundberg
Hér eru þeytingar, sem strjúka hormónana þina og gera húð þina yngri. Hér eru grænir drykkir fullir af ofurfæðu, sem styrkir
ómæmiskerfið og eykur brennslu. Hér eru safar sem fylla líkama þinn af vítamínum. Og síðan eru bæði grænir drykkir og
þeytingar, sem hægt er að borða í stað máltíðar eða nota sem millimáltíð. Allt með einu markmiði – að gefa
þér fullkomna orku og heilbrigði. Uppskriftirnar byggja á orkuhringnum sem er þróaður af Þorbjörgu Hafsteinsdóttir og samanstendur af 10
mismunandi orku svæðum. Í bókinni eru notuð 8 orku svæði sem gefa þér orku, jafnvægi , styrk, orku, ástríðu, jafnvægi,
skýrleika og hreyfingu. Þannig að hvaða part líkamans sem þú þarft að styrkja er orku þeytingur, safi eða grænir drykkir sem
þjófstarta líkamanum eða huganum og skilja eftir viðvarandi aukaorku. Sérhæfing Þorbjargar Hafsteinsdóttir er að koma í veg fyrir
öldrun langt um aldur fram og með 23 ára reynslu í næringu og heilbrigði er hún ein af fremstu fræðingum í Danmörk á þessu
sviði.
Ása hefur búið í New Work síðan hún stakk af frá Íslandi forðum daga. Þegar maðurinn hennar yfirgefur hana fyrir aðra konu
og faðir hennar deyr snýr hún heim á eyðibýli sem einu sinni var æskuheimilið hennar. Í yfirgefnu húsinu ráða draugar
liðinnar tíðar ríkjum og sleppa henni ekki lausri fyrr en hún hefur gert upp við fortíðina, fjölskylduna og lífið sem hún eitt sinn
lifði. Það kemur alltaf nýr dagur er fyrsta skáldsaga Unnar Birnu Karlsdóttur, sagnfræðings.
Íslensk stúlka, við hjálparstörf í Afganistan, bjargar með fífldirfsku sinni lífi bandarísks öldungadeildarþingmanns í
skotáraás hryðjuverkasamtaka þar. Tveimur árum síðar er hann orðinn forseti Bandaríkjanna. Án þess að gruna verður hún
um leið skotspónn samtakanna.
Siri Mari Seim Sønstelie fer í fyrsta sinn í sumarbúðir AUF í Útey í júlímánuði 2011. Í huga Siri er eyjan alveg
eins og Jens Stoltenberg forsætisráðherra hefur lýst henni: Paradís. Allt þar til maður klæddur í gervi-lögreglubúning gengur
á land og byrjar að skjóta. Sumarbúðir AUF breytast í helvíti og Siri flýr yfir sleipa steina um bratta kletta í leit að felustað.
Í landi er pabbi hennar Erik Sønstelie sem upplifir verstu martröð lífs síns. Mun dóttirinn lifa af hildarleikinn á eyjunni í Tyrifjorden?
Bókin gefur góðar upplýsingar um hryðjuverkaárásirnar sem breyttu Noregi. Hún segir einnig sögu um baráttuna við að takast aftur
á við lífið eftir hina ógnvekjandi upplifun.
Í Eldar kvikna er haldið áfram að fylgjast með Katniss, Peeta og Gale og lífi þeirra í Panem þar sem uppreisnarólga er nú að
myndast. Eldar kvikna er önnur bókin í þríleik Suzanne Collins sem farið hefur sigurför um heiminn.
Bókin geymir fimmtán nýjar smásögur sem tengjast allar efnislega – raða sér í svokallaðan sagnasveig – en þær eiga
það sammerkt að fjalla um náin samskipti. Höfundur spyr áleitinna spurninga um hjónabandið, ástina, kynlíf, barneignir,
lífsstíl og heilbrigði og ekki hvað síst um það að eldast saman. Hér er tekist er á við lífið í öllum sínum
fjölbreytileika, allt frá getnaði til dauða. Flestar sögurnar leiftra af kímni en þó er undirtónninn jafnan alvarlegur, enda gerast
ótrúlegustu hlutir á langri lífsleið. Fólk getur verið býsna harðskeytt þegar það leitast við að eiga saman farsæla
ævi.
Á nöturlegu marskvöldi kemur Verónika, ungur rithöfundur sem víða hefur flækst um heiminn, í lítið sænskt þorp í
leit að einveru og kyrrð með það fyrir augum að komast yfir sorg og missi og til að ljúka við skáldsögu.Aldraða einsetukonan Astrid, sem
aldrei hefur yfirgefið þorpið, fylgist með komu hennar, falin á bak við gluggatjöld heimilisins sem geymir átakanlega fjölskylduleyndardóma og
persónulegan harmleik.Leiðir kvennanna liggja saman og vetur verður að vori. Samtímis tekst með þeim hjartnæm og óvenjuleg vinátta sem breytir
lífi beggja.
Hún er ekki lengur hluti af lífi hans – en á hún enn sinn stað í hjarta hans?Libby ætlaði ekki að falla fyrir Jack. Hann var langt
frá því að vera hennar týpa með sitt stóra egó og óbilandi sjálfsöryggi. Seinna fara að læðast að henni
grunsemdir um að hann geti aldrei elskað nokkra konu eins og Eve, fyrstu ástina hans sem lést með voveiflegum hætti.Þegar örlögin snúa
lífi þeirra á hvolf einsetur Libby sér að komast að öllu sem hún getur um Jack og hina fullkomnu Eve. En með hverjum steini sem hún veltir
við, hverju leyndarmáli sem hún afhjúpar, hefur hún ríkari ástæðu til að óttast um eigið líf.
Þegar systir manns er í sárum fer maður og leitar þess sem meiddi hana til að ná fram hefndum. Þegar bróðir manns er sakaður um
glæp sem hann þvertekur fyrir að hafa framið stendur maður með honum. En verði maður ástfanginn af einhverjum úr óvinaliðinu –
hvað gerir maður þá? Mikey er átján ára og á heima í bæjarblokk en Ellí sem er sextán býr í fínni
villu. Hann er fátækur og hún er rík. Systir hans sakar bróður hennar um nauðgun en bróðirinn segir að allt hafi gerst með hennar
samþykki. Svo hittast þau Mikey og Ellí … Má ekki elska þig er saga um tryggð, ábyrgð og fjölskyldubönd, um rétt og rangt.
Líka ráðgáta um glæp sem kannski var framinn – og kannski ekki. En fyrst og fremst er þetta saga um ástina sem vaknar hjá ungu fólki og
hvernig henni reiðir af við vonlausar aðstæður.
Korter fjallar um fjórar dætur Reykjavíkur sem eiga fátt sameiginlegt annað en umhverfið í 101 og griðastaðinn Café Korter í
Bankastræti. Hressileg saga um ástina og lífið sem spannar allt litróf mannlegra tilfinninga. Sólveig Jónsdóttir er fædd árið
1982. Hún hefur lokið BA-námi í stjórnmálafræði og mastersnámi í þjóðernishyggju og
þjóðernisátökum frá Edinborgarháskóla. Sólveig hefur starfað sem blaðamaður og pistlahöfundur með hléum
síðan 2005. Skáldsagan Korter er fyrsta bók hennar.
Bókin lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af ... þangað til hún skilur í stað þess að skynja ...
Lýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda áratugnum. Hún hefur mikið og frjótt
ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga
sér dekkri hlið ... Höfundur: Beate Grimsrud Lýdía býr ásamt fjölskyldu sinni í smábæ í Noregi á áttunda
áratugnum. Sjónarhornið er hennar og lesandi fylgist með þegar hún upplifir ljúfsár tímamót æsku og unglingsára. Systkinin
eru sjö og fjölskyldan þykir óvenjuleg“ ... hefur ekki mikið umleikis, faðirinn atvinnulaus sveimhugi en móðirin píanóleikari með
brostnar vonir. Stúlkan hefur mikið og frjótt ímyndunarafl – hún dvelur oft við augnablik og minningar og úr þeim verða sögur, stundum
léttar og barnslegar en sumar þeirra eiga sér dekkri hlið ... Hún skynjar lífið frekar en hún skilji það og þannig fær lesandi
nýtt og ferskt sjónarhorn á fjölskyldulíf, ást, umhyggju, drauma og metnað, og ýmislegt annað sem tekst á í huga fólks
frá degi til dags. Ég læðist framhjá öxi lýsir upplifun lítillar stúlku sem þarf að lifa af ... þangað til hún
skilur í stað þess að skynja ... þangað til hún fullorðnast. Hjalti Rögnvaldsson íslenskaði. Bókin var tilnefnd til
Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2000.
Í þessari bók er fjallað um lítt þekktar og áhugaverðar ferðaleiðir um landið, einkum á hálendinu. Alls eru lýsingar
á rúmum 40 leiðum í bókinni. Kort fylgir hverri leið og í bókinni er aragrúi ljósmynda. Loks eru hagnýtar upplýsingar um
hverja leið fremst í hverjum kafla. Í inngangi bókarinnar eru miklar almennar upplýsingar um ferðalög á hálendinu, hvað ber að varast og
hvað er nauðsynlegt að hafa með í farteskinu.
Jack Reacher á leið um afskekkta sveit á sléttum Nebraska. Hann ætlar ekkert að stoppa en þegar hann veitir manni sem lemur konuna sína
ráðningu flækist hann inn í atburðarás sem reynist háskalegri en flest annað sem hann hefur lent í. Flutningafyrirtæki
Duncan-bræðra heldur ekki bara bændunum á svæðinu í heljargreipum einokunar, það flytur líka eitthvað sem enginn má vita um.
Reacher þarf bæði að takast á við hóp vöðvatrölla og harðsvíraða útsendara glæpagengja til að komast að
leyndarmálinu sem fortíðin geymir. Spennusögur metsöluhöfundarins Lees Child um harðjaxlinn Jack Reacher hafa slegið rækilega í gegn um heim
allan. Á íslensku hafa áður komið út bækurnar Í frjálsu falli, Friðlaus og Fimbulkaldur. Jón St. Kristjánsson
þýddi
Eldingarþjófurinn PERCY JACKSON er um það bil að verða rekinn úr heimavistarskólanum... þeim sjötta á jafn mörgum árum! Og
það er ekki það versta. Undanfarið virðast goðsöguleg skrímsli og guðirnir á Ólympsfjalli ganga beint út af
blaðsíðunum í grísku goðafræðibókinni og inn í líf hans. Og það sem verra er, hann hefur reitt nokkra þeirra til
reiði. Þrumufleyg Seifs hefur verið stolið og Percy er grunaður um þjófnaðinn. Percy og vinir hans hafa tíu daga til að finna stolna fleyg Seifs og
skila honum, annars brýst út stríð á milli guðanna uppi á Ólympsfjalli og vestræn siðmenning gæti gjöreyðst.
Eftir þriggja ára dvöl í Washington sem fréttaritari Kvöldblaðsins er Annika Bengtzon komin til Stokkhólms í sitt gamla starf og tekin saman
við eiginmanninn Thomas á ný. Lík ungrar móður finnst við leikskóla í úthverfi borgarinnar og reynist vera fjórða unga konan
sem myrt er með svipuðum hætti á skömmum tíma. Á meðan Annika rannsakar málið sækir Thomas ráðstefnu í Nairobi í
Kenía og í kynnisferð við landamæri Sómalíu er sendinefndinni sem hann tilheyrir rænt. Mannránin valda mikilli ólgu í
Evrópu og Annika dregst inn í æsispennandi atburðarás þegar reynt er til þrautar að semja um lausn gíslanna.
« Fyrri | 1 | 2 | Næsta »

Valmynd

  • Forsíða
  • Starfsfólk
    • Ellen Margrét Þorvaldsdóttir
    • Guðrún Kristín Jónsdóttir
    • Guðrún Hulda Sigtryggsdóttir
    • Herdís Anna Friðfinnsdóttir
    • Hólmfríður Andersdóttir
    • Hólmkell Hreinsson
    • Hörður Ingi Stefánsson
    • Margrét Guðmundsdóttir
    • Nanna Lind
    • Sigrún Ingimarsdóttir
    • Þorsteinn G. Jónsson - Doddi
  • 100 bækur
  • Barnastarf
  • Þjónusta
    • Stefna Amtsbókasafnsins
    • Safnkostur og skipulag
    • Upplýsingaþjónusta
    • Útlán
    • Millisafnalán
    • Gjaldskrá
    • Heimsendingar
    • Lestrarsalur
    • Sýningaraðstaða
    • Algengar spurningar
    • Skylduskil
    • Skönnun á dagblöðum
    • Rýni á tónlist, kvikmyndir og bækur
      • Tónlistargagnrýni
        • Britney Spears: Femme Fatale
        • Fleet Foxes: Helplessness Blues
        • Of Monsters and Men: My head is an animal
        • Birgitta Haukdal: Straumar
      • Kvikmyndagagnrýni
        • 2010 - bestu mynddiskar ársins
        • Død snø
        • Inception
        • Tucker & Dale vs Evil
    • Safnbúð
  • Hafðu samband
    • Spurðu bókavörðinn
    • Tillaga um efniskaup
    • Hrís og hrós
  • Saga
  • English
    • Administration
    • Circulation
    • Information/Reference Desk
    • Movies and music
    • Internet access
    • Children and teenagers
    • Study hall
    • Library shop
  • SVENSKA
  • Rafbækur / Ebooks
  • Krydd
    • Tónlist
    • Kvikmyndir
    • Tímarit
    • Hljóðbækur
    • Myndbönd
    • Leikir
    • Allskonar
    • Bókaspjall
  • Innri vefur

Leit

Follow Me on Pinterest

Fara á Flickr síðu Amtsbókasafnsins

Viðburðir

24.04.2013 - 31.05.2013
Þetta vilja börnin sjá!
10.06.2013 - 28.06.2013
Sumarlestur 2013
28.06.2013 - 31.08.2013
Álfabækur
1.10.2013
Bókaverðlaun barnanna
Yfirlit

Dagatal

« Maí 2013 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031 

Skráning á póstlista

Afgreiðslutími í sumar

(16.5.13.-15.9.13)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Lokað laugardaga og sunnudaga

Nýtt - Nýtt - Nýtt!

  • blf1902

Leita - Panta - Endurnýja

Leitargluggi - leitir.is
leitir.png
Leitarvefur sem býður upp á leitir í Gegni ásamt timarit.is og fleiru. Hægt að leita að myndefni, ljósmyndum, bókum, tónlist, greinum, ritgerðum og tímaritum!

Amts-Kaffi-Ilmur

Matseðill og allar upplýsingar
  • Hafa samband
  • Veftré
  • +A -A
Akureyri öll lífsins gæði
sunnudagur 19.05. 2013
kl. 15:02
+13.5°SV 2 m/s
  • Uppi

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.   HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is

moya
Venjulegt útlitBreyta stillingum