Tónlist

Gogoyoko
Á Gogoyoko getur þú hlustað á og keypt tónlist. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna er á síðunni. Þarna er enginn milliliður heldur sjá tónlistarmenn sjálfir um að setja efnið sitt á síðuna, og fá þar af leiðandi allan peninginn í eigin vasa.

SongFacts
Þarna má sjá ýmsar staðreyndir um lög. Sláðu inn nafn á lagi og sjáðu upplýsingar um hvað það er, hvers vegna það var ort, og svo framvegis. Einnig er hægt að senda inn sínar upplýsingar. Vissirðu til dæmis að Let it be var fyrsta Bítlalagið sem var spilað í Sovétríkjunum? Það var árið 1972.

Tónlist.is
Þennan vef þarf varla að kynna mikið. Hér geta notendur skráð sig inn og keypt aðgang að tónlist, keypt tónlist til niðurhals ásamt því að fá ýmsar upplýsingar um viðkomandi listamenn.

Allmusic
Vefur sem allir tónlistarunnendur ættu að heimsækja reglulega. Yfirlit yfir listamenn og hvað þeir hafa gefið út, ásamt einkunnargjöf og myndum.