Tímarit

Eitt sinn var bara hægt að lesa tímarit á pappírsformi, síðan komu útgefnir geisladiskar með nokkrum árgöngum af tímaritunum og gagnasöfnum ... og nú má

Flýtilyklar

Tímarit

Eitt sinn var bara hægt að lesa tímarit á pappírsformi, síðan komu útgefnir geisladiskar með nokkrum árgöngum af tímaritunum og gagnasöfnum ... og nú má segja að flestöll tímarit sé hægt að finna á netinu, þó svo að þau bjóði ekki öll upp á sama innihald og það sem er í prentuðu útgáfunum. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir nokkur tímarit (innlend og erlend) sem bjóða upp á ágætis efni á vefsíðum sínum. Við byrjum hins vegar á gáttinni timarit.is:

Tímarit.is
Þetta er stafrænt bókasafn sem veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Aðgangur er öllum opinn og stuðst er við nýjustu tækni í geymslu og miðlun upplýsinga. Markmiðið er að bæta aðgang að prentuðum blöðum og tímaritum og bjóða upp á nýjar rannsóknaraðferðir. Blöðin og tímaritin hafa að geyma, auk almenns fréttaefnis og auglýsinga, mikið efni á sviði bókmennta, sagnfræði, ættfræði, þjóðlífs, menningar, atvinnuvega og viðskipta. Notendur geta leitað að efni á ýmsan hátt, svo sem eftir löndum og titlum, eða að völdu orði í öllum texta ritanna. Þeir geta einnig blaðað í gegnum efnið og prentað út valdar blaðsíður. Jafnt og þétt bætast við safnið fleiri titlar.


Innlend

....

Lifandi vísindi
Lifandi vísindi er mjög vinsælt fræðslutímarit. Vefsíðan er einföld að gerð, byggð upp á greinum, spjallrás og þáttunum ný tækni, ný þekking og spurningar og svör. Frábært yfirlit er einnig að finna á síðunni yfir fræðilega hlekki.

Læknablaðið (The Icelandic Medical Journal)
Hér má sjá margar fræðigreinar sem birst hafa í Læknablaðinu og hægt er að fletta upp greinum í gömlum tölublöðum. Handhægur vefur og einfaldur í notkun.


Erlend

....

Scandinavian Public Library Quarterly
arkmiðið með blaðinu er að koma á framfæri því sem er að gerast í skandinavískum bókasöfnum, sem og að búa til vettvang fyrir áhugaverð og uppbyggjandi samskipti. Blaðið er á ensku og er því ætlað að ná til stærri hóps (hins enskumælandi heims).

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Febrúar 2012 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
fimmtudagur 09.02. 2012
kl. 12:39
SV 3 m/s
  • Þorri

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í vetur (16. september - 15. maí):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: kl. 11:00-16:00
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.     HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is