Kvikmyndir

..... Internet Movie Database (IMDb) Vinsælasti, mest verðlaunaði og stærsti vefurinn um kvikmyndir! Hér geta notendur skráð sig inn, gefið kvikmyndum

Flýtilyklar

Kvikmyndir

.....

Internet Movie Database (IMDb)
Vinsælasti, mest verðlaunaði og stærsti vefurinn um kvikmyndir! Hér geta notendur skráð sig inn, gefið kvikmyndum einkunnir, ritað dóma um kvikmyndir, tekið þátt í umræðum af öllu tagi, skoðað sýnishorn úr kvikmyndum, séð helstu fréttir dagsins, ásamt svo ótrúlega mörgu öðru. Hvert kvikmyndaelskandi mannsbarn ætti hiklaust að vera skráð á þennan vef!

iTunes Movie Trailers
Ef þú vilt sjá sýnishorn úr einhverri nýlegri eða væntanlegri kvikmynd, þá er þetta mjög góður staður - einn sá besti. Mjög stutt bið eftir að sýnishornið hefjist og gæðin góð.

Kvikmyndir.is
Íslenskur vefur um kvikmyndir, sem leggur áherslu á það sem verið er að sýna í innlendum kvikmyndahúsum, ásamt skemmtilegum fróðleik um myndirnar, leikarana og ýmislegt annað.

Movie Mistakes
Ekki hafa allir kvikmyndaáhugamenn jafn gaman af því þegar bent er á mistök í kvikmyndum. Það eyðileggur stundum fyrir þeim upplifunina. Svo eru til aðrir sem neita því að um mistök sé að ræða. Ein besta síðan (ef ekki sú besta) á netinu sem hefur tekið saman yfirlit yfir mistök í kvikmyndum er einmitt MovieMistakes.com og áhugasömum er bent á þessa síðu þar sem hægt er að skrá sig inn, taka þátt í umræðum og benda á vitleysur ... eða hreinlega að afsanna vitleysurnar :-)

Myndvarp
yndvarp er vikulegt hlaðvarp um kvikmyndir og allt annað. Markmið Myndvarps er að vera góð blanda af gagnrýni og umfjöllun, benda á áhugaverðar myndir sem gætu hafa farið framhjá fólki, sem og að taka fyrir viss umfjöllunarefni og fjalla ítarlega um þau.

Rotten Tomatoes
Virkilega skemmtilegur vefur með góðum upplýsingum um kvikmyndir og leikara, ásamt því að gefa notendum tækifæri á að dæma kvikmyndir og taka þátt í umræðum. Hér er einnig gott yfirlit yfir gagnrýni frá hinum ýmsu gagnrýnendum, sem og almennum notendum síðunnar.

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:15
+2.8°SSA 1 m/s
  • Bokasafn

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.  HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is