Óskarsverðlaunamyndir

Óskarsverðlaunamyndir Tilboðsmyndir febrúarmánaðar hjá okkur verða Óskarsverðlaunamyndir, þ.e. þær myndir sem hafa unnið til Óskarsins. Tilefnið er hin

Flýtilyklar

Fréttir

Tilboðsmyndir febrúarmánaðar hjá okkur verða Óskarsverðlaunamyndir, þ.e. þær myndir sem hafa unnið til Óskarsins. Tilefnið er hin stórkostlega umdeilda og árlega Óskarsverðlaunahátíð sem í ár verður haldin 26. febrúar nk. Þarna má finna snilldarverk eins og Inception, Citizen Kane, Casablanca, It Happened One Night, Brokeback Mountain, The Network, Lord of the Rings-trílógíuna, Godfather myndir númer 1 og 2, The Departed ... o.fl.

Þess má geta að nokkrar myndir sem eru útnefndar til Óskarsverðlauna í ár eru þegar til í okkar safni. Þær eru ekki á tilboði en áhugavert fyrir kvikmyndaáhugamanninn að geta séð þessar myndir áður en hátíðin fer fram. Hér erum við að ræða um The Tree of Life, Transformers: Dark Side of the Moon, Bridesmaids og Rise of the Planet of the Apes. Síðar í mánuðinum verða gefnar út verðlaunamyndirnar Drive og The Help, en sú síðarnefnda er til dæmis ansi líkleg til að hljóta 2-3 Óskara undir lok mánaðarins.

Úrval eldri Óskarsverðlaunamynda hjá okkur er töluvert. Kíkið á safnið, einungis 100 kr. hvert útlán fyrir hverja Óskarsverðlaunamynd í febrúar.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.

Skrifa athugasemd




captcha

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:11
+2.8°SSA 1 m/s
  • meira nymeti

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.  HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is