Nýtt efni

Nýtt efni Daglega kemur nýtt efni í útlánadeildina, hvort sem um er að ræða bækur, blöð, tónlist, kvikmyndir, teiknimyndasögur eða annað. Pantanalistarnir

Flýtilyklar

Fréttir

Daglega kemur nýtt efni í útlánadeildina, hvort sem um er að ræða bækur, blöð, tónlist, kvikmyndir, teiknimyndasögur eða annað. Pantanalistarnir eftir jólin eru orðnir mun styttri og því biðin eftir vinsælustu bókunum ekki jafn löng. Það ætti því að vera léttur leikur að rölta á Amtsbókasafnið og geta tekið með sér eitthvað nýtt efni. Til dæmis þetta:

Mynd úr kvikmyndinni The BeaverThe Beaver (2011) - kvikmynd sem Jodie Foster leikstýrir og leikur í. Meðal annarra leikenda eru til dæmis hinn umdeildi Mel Gibson (Braveheart snilldin er auðvitað á tilboði þennan mánuðinn) og ein af allra vinsælustu ungstjörnunum í dag, Jennifer Lawrence (sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir ári síðan fyrir hlutverk sitt í Winter's Bone, sem Amtsbókasafnið vissulega á).

Lógó fyrir söngvakeppni sjónvarpsinsSöngvakeppni Sjónvarpsins 2012 - geisladiskur með öllum lögunum sem tóku þátt í undankeppninni íslensku árið 2012. Einn diskur, fimmtán lög, einn sigurvegari sem keppir fyrir Íslands hönd í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva... bara gaman.

Kápumynd af KekkaishiKekkaishi - teiknimyndasöguflokkur sem fjallar um unglinginn Yoshimori Sumimura, sem er "kekkaishi", djöflaveiðimaður með galdrakrafta.


Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.

Skrifa athugasemd




captcha

Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:11
+2.8°SSA 1 m/s
  • Amtsbokasafn

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.    HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is