Veitingarekstur á safninu

Ert þú réttur aðili?
Ert þú réttur aðili?

Amtsbókasafnið á Akureyri óskar eftir rekstraraðila að veitingasölu á safninu.
Veitingasalan er á fyrstu hæð safnsins, nálægt inngangi og anddyri og er með virkt veitingaleyfi.
Veitingasalinn hefur aðgang að eldhúsi og aðstöðu fyrir gesti, en hún er samnýtt með bókasafninu, sem notar hana fyrir netkaffi, dagblöð og tímarit sem og ýmsa viðburði og fyrirlestra.
Núverandi rekstraraðilar munu hætta störfum þann 1. desember næstkomandi og æskilegt er að nýr aðili taki við keflinu sem fyrst eftir þá dagsetningu.

Umsækjendur og áhugasamir geta fengið allar nánari upplýsingar hjá Hólmkeli Hreinssyni

í síma 460 1253 og 862 6882 eða með tölvupósti: holmkell@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan