Þín eigin þjóðsaga 13. nóvember kl. 16:15

Ævar Þór Benediktsson
Ævar Þór Benediktsson

Hefurðu heyrt um íslensku þjóðsögurnar? Þær eru fullar af skessum og skrímslum, álfum og uppvakningum, jólasveinum og draugum. En hvað myndir þú gera ef þú hittir þessar verur?

Ævar Þór mætir í sögustund á fimmtudaginn og kynnir þessa skemmtilegu bók!

þín þjóðsaga

Þín eigin þjóðsaga er öðruvísi en allar aðrar bækur – hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Sögusviðið er heimur íslensku þjóðsagnanna og hætturnar leynast við hvert fótmál. Þú getur rekist á Djáknann á Myrká, séð stórhættulegar íslenskar hafmeyjur, glímt við sjálfan Lagarfljótsorminn og bjargað Karlssyni og Búkollu frá hræðilegustu tröllum sem sést hafa hér á landi!

• Yfir fimmtíu ólíkir endar.
• Sögulok spanna allt frá eilífri hamingju til skyndilegs bana.
• Óþrjótandi skemmtun fyrir krakka frá 9 ára aldri.

Ævar Þór Benediktsson hefur aflað sér vinsælda með skemmtilegum þáttum í sjónvarpi og útvarpi og bókum fyrir börn. Hér fléttar hann saman fjölmörgum þjóðsögum og þjóðsagnapersónum í einn stóran sagnaheim sem á engan sinn líka.

Heimasíðu Ævars má skoða hér, þar úir og grúir af skemmtilegu efni!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan