Sumarlestur 2016

Lestur er bestur í sumarlestri :-)
Lestur er bestur í sumarlestri :-)

Akureyri - bærinn minn

Lestrarhvetjandi námskeið fyrir börn í 3. og 4. bekk í samstarfi Amtsbókasafnsins og Minjasafnsins á Akureyri

Námskeiðið er ætlað börnum sem fædd eru á árunum 2006 og 2007 (3. og 4. bekkur)

Umhverfislæsi - Bókalæsi

Markmið námskeiðsins er að börnin lesi sér til ánægju í  sumar. Áhersla er lögð á yndislestur og að efla færni barnanna í að lesa í minjar, umhverfi, sögu og listir bæjarins.

Námskeiðstímabil:

Hvert námskeið er 4 dagar milli kl. 9:00 - 12:00

  • Vika 1: 7. – 10. júní (ekki mánudaginn 6. júní)
  • Vika 2: 13.—16. júní (ekki föstudaginn 17. júní)
  • Vika 3: 20.—23. júní (ekki föstudaginn 24. júní)

Námskeiðsgjald er 2.500 kr. — fjöldatakmarkanir eru á námskeiðin.

Skráning hefst þann 25. maí á netfanginu:  ragna@minjasafnid.is

Upplýsingar sem þurfa að koma fram í skráningu:

  • Nafn barns og forráðamanna
  • Eftir hvaða tímabili er óskað
  • Skóli og bekkur
  • Netföng, símanúmer (heimasími, gsm og vinnusímar forráðamanna)

Greiðsluupplýsingar berast við skráningu og námskeiðsgjöld þarf að greiða innan 2ja daga frá svarsendingu til að staðfesta þátttöku því færri komast að en vilja.

www.amtsbok.is og www.minjasafnid.is


 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan