Nýtt þema í mynddiskum á 1. hæð

Nýtt þema í mynddiskum á 1. hæð Eins og allir safngestir okkar vita, þá eru hjá okkur stöðug tilboð í mynddiskunum. Nýtt tilboð er komið fyrir

Flýtilyklar

Nýtt þema í mynddiskum á 1. hæð

Auglýsing fyrir tilboð nóvember-mánaðar!
Auglýsing fyrir tilboð nóvember-mánaðar!

Eins og allir safngestir okkar vita, þá eru hjá okkur stöðug tilboð í mynddiskunum. Nýtt tilboð er komið fyrir nóvember-mánuð og þar er hálfgerð tilraun á ferðinni. Við köllum tilboðið „Allskonar myndir“ en það er einn starfsmaður sem sér um að velja myndirnar. Ef viðtökur verða góðar við þessari aðferð á að velja tilboðsmyndir, þá er næsta víst (eins og Bjarni Fel segir alltaf) að annar starfsmaður verði fenginn til að velja myndir fyrir einhvern mánuð í framtíðinni.

Mynd af tveimur leikurum myndarinnar Inception

Starfsmaðurinn sem velur myndirnar í nóvember heitir Þorsteinn G. Jónsson, nær alltaf bara kallaður Doddi. Ef Doddi væri frægur í Hollywood, þá héti hann örugglega Dodd Johnson. Margir myndu þá eflaust rugla honum saman við Don Johnson, þann eðalleikara, svo skammstöfunin DJ yrði notuð sem listamannanafn og myndi varla valda neinum misskilningi...

Alla vega, þá velur hann myndirnar og hér má sjá fantasíur, spennumyndir, sakamálamyndir, íslenskar myndir, sænskar myndir, kóreskar myndir, rómantískar myndir, vasaklútamyndir, hjartastoppsmyndir o.fl.

Til gamans má láta hér fylgja með nokkrar línur úr myndunum sem DJ hefur valið:

"I know how to find secrets from your Mind, I know all the tricks!"

"Well, what if there is no tomorrow? There wasn't one today."

"Take Hitler and stick him on the funny page."

"How could I forget about you? You're the only person I know."

"You know... an interesting fact, actually - the first champagne glass was molded on the left breast of Marie Antoinette. [...] I don't know if there was something wrong... with her right one..."

"I have the perfect weapon right here: these two hands."

"I knew I hated you for a reason, I'm gonna tell everyone in prison I went back in time to kill my own father!"

"I'm not apologizing for what I did. I'm apologizing for what I didn't do."


Skráning á póstlista

Viðburðir

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Afgreiðslutími í vetur

(16.9.11.-15.5.12)
Mánudagar: 10.00-19.00 Þriðjudagar: 10.00-19.00 Miðvikudagar: 10.00-19.00 Fimmtudagar: 10.00-19.00 Föstudagar: 10.00-19.00 Laugardagar: 11.00-16.00 Sunnudagar: Lokað
Akureyri öll lífsins gæði
miðvikudagur 16.05. 2012
kl. 22:06
+2.8°SSA 1 m/s
  • Amtsbokasafn

    Amtsbókasafnið á Akureyri
    Afgreiðslutími í sumar (16. maí - 15. september):
         Mánudaga til föstudaga: kl. 10:00-19:00
         Laugardaga: Lokað
         Sunnudaga: Lokað

    Amtsbókasafnið er elsta stofnun Akureyrarbæjar og var stofnað 1827 en opnaði í núverandi húsnæði árið 1968.    HÉR MÁ LESA MEIRA UM SÖGU SAFNSINS »

 

Amtsbókasafnið  |  Brekkugötu 17, 600 Akureyri  |  Sími: 460 1250  |  Bréfasími: 460 1251  |  Tölvupóstur: bokasafn@akureyri.is