Mánudaginn 11. nóvember 2013 hefst Norræna bókasafnavikan.
Þá setjumst við niður og lesum upphátt sama bókmenntatexta á sama tíma á öllum Norðurlöndunum. Vikan er sneisafull af upplestrum, sýningum og umræðum á menningardagskrám á þúsundum bókasafna, skóla og annarra samkomustaða á öllum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.
Hér á Amtsbókasafninu verður einnig hugguleg dagskrá í tali og tónum. Allir velkomnir!