Leikföng og málverk

Leikfangamyndir
Leikfangamyndir

Ólafur Sveinsson sýnir málverk af sínum gömlu leikföngum sem og leikföngum barna sinna. Málverk þessi eru ýmist unnin með olíu eða akrýl á striga. Sýningin opnar 2. des og stendur út desember. Ólafur hefur sýnt víða bæði hérlendis og erlendis.

Myndefnið, leikföngin eru jafnt skráning um liðna tíð og áminning um að varðveita barnið í sjálfum okkur og gleðjast yfir því smáa í lífinu og þeim minningum sem vonandi veita okkur gleði.

Njótið!

Ólafur Sveinsson

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan