Fréttir

Fólkið í kaupstaðnum

Akureyri 1862
Föstudaginn 24. ágúst verður opnuð sýning á Héraðsskjalasafninu, Brekkugötu 17 og ber hún nafnið - Fólkið í kaupstaðnum. Þar eru teknir fyrir íbúar bæjarins og þeim gerð skil í ættfræði og skjölum. Þeir sem vilja rekja ættir sínar til þessa fólksins sem bjó í kaupstaðnum 1862 geta beðið um aðstoð hjá skjalavörðum. Sýningin verður opin til 24. september kl. 10:00-19:00 á virkum dögum. Lesa meira

Hér, þar og allsstaðar

Hér, þar og allsstaðar samanstendur af fjölda einkasýninga undir einum hatti „út um allt“ á Akureyri. Formleg opnun verður 23. júní og sýningar standa út Akureyrarvöku, eða til mánudagsins 3. september

Allt í plús


Samsýningin ALLT + varð upphaflega til í samstarfi Myndlistarfélagsins á Akureyri og Sjónlistamiðstöðvarinnar og hét þá Hér, þar og allstaðar, síðan til styttingar Alltið og að lokum ALLT (í) PLÚS.Hér, þar og allsstaðar samanstendur af fjölda einkasýninga undir einum hatti „út um allt“ á Akureyri. Formleg opnun var 23. júní og sýningar standa út Akureyrarvöku, eða til mánudagsins 3. september. Lesa meira