Fréttir

Hér, þar og allsstaðar

Hér, þar og allsstaðar samanstendur af fjölda einkasýninga undir einum hatti „út um allt“ á Akureyri. Formleg opnun verður 23. júní og sýningar standa út Akureyrarvöku, eða til mánudagsins 3. september

Allt í plús


Samsýningin ALLT + varð upphaflega til í samstarfi Myndlistarfélagsins á Akureyri og Sjónlistamiðstöðvarinnar og hét þá Hér, þar og allstaðar, síðan til styttingar Alltið og að lokum ALLT (í) PLÚS.Hér, þar og allsstaðar samanstendur af fjölda einkasýninga undir einum hatti „út um allt“ á Akureyri. Formleg opnun var 23. júní og sýningar standa út Akureyrarvöku, eða til mánudagsins 3. september. Lesa meira

Til þín - Frá mér

Til þín - Frá mér :-)
22. júní -2. júlí verður sýning á verkum úr Listasmiðju barna, 8 – 12 ára, þar sem eingöngu er unnið með endurnýtt hráefni. Innblástur við verkefnið er afmæli Akureyrarbæjar. Hugmyndirnar eru fjölbreyttar og afraksturinnn mjög skemmtilegur! Listasmiðjan er með aðstöðu í Punktinum Rósenborg og leiðbeinendur eru listafólkið George Hollanders, Sharka Mrnakova og Eygló Antonsdóttir. Lesa meira

Sumarlestur – Akureyri – Bærinn minn!

Sumarlestur :-)
Amtsbókasafnið og Minjasafnið auglýsa lestrarhvetjandi sumarnámskeið fyrir börn úr 3. og 4. bekk. Við lesum, lærum um bæinn okkar og sögu hans og höfum að sjálfsögðu gaman saman:-) Allir hjartanlega velkomnir! Lesa meira

Bókahillan

Bókahillan
Málverkið, Bókahillan eftir Grétu Berg er nú til sýnis á Amtsbókasafninu - „Tilurð þeirrar myndar er ég sýni hér er tilviljunarkennd. Ég var stödd hjá vinkonu og var að horfa fjarrænt á bókaskápinn hennar þar sem bækur voru í röð og einnig lagðar lárétt frá sér í stafla. Þá sá ég þessa mynd út úr staflanum...“ Lesa meira