Bókavörður

Laust starf á Amtsbókasafninu
Laust starf á Amtsbókasafninu

Amtsbókasafnið á Akureyri óskar að ráða bókavörð í 100% starf frá og með 1. mars  2015.

Unnið er til skiptis frá 8:00-16:00 og frá hádegi til kl. 19:00. Á veturna er fjórði hver laugardagur frá 10:30-16:15 hluti af vinnutímanum.

Helstu verkefni eru:

  • Þjónusta við notendur bókasafnsins; bæði innan safns og utan.
  • Upplýsingagjöf og afgreiðsla.
  • Vinna við aðföng, umsýslu og frágang safnefnis.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Tungumálakunnátta, enska og a.m.k. eitt annað erlent tungumál.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Nákvæmni, vandvirkni og snyrtimennska.
  • Lipurð í samskiptum og rík þjónustulund.
  • Vilji til að vinna í hóp
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kjalar.

Upplýsingar umkaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma: 460-1060.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hólmkell Hreinsson í síma 862-6882 eða í netfangi:holmkell@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar:www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða í þjónustuanddyri Ráðhússins.

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2016.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan