Arkir - Endurbókun

Bókverk í júní
Bókverk í júní


Á sýningunni ENDURBÓKUN má sjá brot af verkum úr smiðju ARKA, hópi ellefu listakvenna sem stunda bókverkagerð.

Öll verk á sýningunni eiga það sameiginlegt að vera unnin úr gömlum bókum. Flestar þeirra voru fengnar hjá bókasöfnum, en bókasöfn afskrifa árlega nokkurn fjölda bóka til frekari útlána. Þessar gömlu bækur, sem lokið hafa hlutverki sínu, hafa öðlast nýtt líf í einstæðum listaverkum.

ARKIR hittast reglulega til að bera saman bækur sínar en meðlimir hópsins hafa um margra ára skeið stundað bókverkagerð af ýmsum toga.

Listakonurnar sinna öllu jafna fjölbreyttri listsköpun á sviði málaraog grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar en eiga það sameiginlegt að hrífast af bókverkum.

Bókverk er samheiti yfir listaverk sem tengjast á ein-hvern hátt bókinni sem formi og hugtaki. Fjölbreytni bókverka er óendanleg enda hugmyndaflug listamannsins eina takmörkunin.

Bókverk geta verið fjölfölduð eða einstæð, aðeins til í einu eintaki, með augljósu yfirbragði handverksins eins og mörg verkanna á sýningunni Endurbókun. Aðferðirnar sem notaðar eru við sköpunina eru margvíslegar; pappírsbrot, klippitækni og skurður, textílaðferðir, málun og teikning og þrykkaðferðir svo nokkuð sé nefnt.

Nánari upplýsingar um ARKIR á vefnum: www.arkir.wordpress.com

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan