Allir lesa!

Allir lesa!
Allir lesa!

Landsleikurinn ALLIR LESA fer fram í fyrsta sinn 17. október til 16. nóvember 2014 og lýkur honum því á degi íslenskrar tungu.

Þetta er einfaldur leikur sem allir geta tekið þátt í en hann felst í því að þátttakendur skrá lestur sinn í lestrardagbók á vefnum allirlesa.is og taka þátt í liðakeppni sem er í svipuðum dúr og t.d. Hjólað í vinnuna. Þau lið sem verja mestum tíma í lestur á keppnistímanum standa uppi sem sigurvegarar.

Markmiðið með leiknum er að auka lestur íslensku þjóðarinnar og fá fleiri til að njóta þess sem lesturinn færir hverjum og einum. Honum er ætlað að hvetja þá sem lesa til að lesa enn meira og hina sem lesa lítið eða ekki neitt, að hefja lesturinn.

NÁNAR UM ALLIR LESA

Leikurinn gengur út á að þátttakendur skrái þá titla sem þeir lesa og þann tíma sem þeir verja í lestur. Þar sem leshraði fólks er mismunandi og háður ótal þáttum er ekki farin sú leið að telja blaðsíður, heldur eru það mínútur sem gilda. Þetta er ekki hraðlestrarkeppni, fólk getur notið þess að lesa í rólegheitunum.

Það skiptir ekki máli hvernig bækur fólk les eða á hvaða formi - prentaðan texta, rafbók eða hljóðbók - allar tegundir bóka eru gjaldgengar í keppninni. Hér er átt við bækur sem innihalda til dæmis skáldskap, fræði, skýrslur eða eitthvað allt annað. 

Skráning liða á allirlesa.is hefst þann 10. október.

Lestrardagbókin verður áfram opin á vefnum eftir að keppninni lýkur og þar getur fólk haldið utan um eigin lestur allt árið um kring. 

allir lesa

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan