Afgreiðslutími Amtsbókasafnsins um jól og áramót

 

Kæru safngestir. Sem betur fer ber aðfangadag upp á laugardag og það þýðir að yfir hátíðirnar (jól og áramót) verða dagarnir fáir sem safnið verður lokað smellið á  fallegu grænu myndina hér til hliðar til að sjá betur). Þetta gefur ykkur því fleiri tækifæri til að koma á bókasafnið og fá efni lánað. Ef þið takið mynddisk að láni á fimmtudag eða föstudag, þá fáið þið að hafa hann einum degi lengur en venjulega þar sem mánudagurinn er annar í jólum  Svo byrjum við nýtt ár með miklum krafti mánudaginn 2. janúar 2017. Jólabækurnar streyma inn og út og pantanalistinn gefur ákveðna vísbendingu um vinsældir ... jólamyndirnar eru á sínum stað og af nógu að taka. Og viti menn ... 2fyrir1 tilboðið verður í fullu fjöri á Þorláksmessu. "Ég hlakka svo til ... ég hlakka alltaf svo til ..."

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan