100 Íslendingabækur

Fólkið í landinu
Fólkið í landinu

Amtsbókasafnið og Menningarhúsið Hof vinna saman að dagskrá þar sem fjallað er um ritlist og bókmenntir á einn eða annan hátt.  Markmiðið með samstarfinu er meðal annars að auka sýnileika ritlistar og bókmennta í samfélaginu.

BÓKAHILLAN
Bókahillu hefur verið komið fyrir á veitingastaðnum í Hofi, 1862 Nordic Bistro, og geta gestir og gangandi gluggað í bækurnar í hillunni. Amtsbókasafnið sér um að fylla á hilluna en bókunum er skipt út mánaðarlega og í hverjum mánuði er ákveðið þema.

Í október er þemað; Íslendingar

Íslendingar eru af öllum stærðum og gerðum og líklega eins misjafnir og þeir eru margir. Hér er samsafn bóka um fólkið, lífið og tilveruna á Íslandi fyrr og nú. Hér eru menn og málefni í ýmsu samhengi, ástir, örlög, afrek, strit og glens, svo eitthvað sé nefnt.

Endilega lesið og fræðist um fólkið í landinu!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan