100 bækur

 100 BESTU BARNABÆKURNAR

Í tilefni af Bókasafnsdeginum þann 17. apríl 2012, hefur starfsfólk bókasafna landsins valið 100 bestu barna- og unglingabækurnar.

Bækurnar hafa allar komið út á íslensku og eru bókavörðum landsins eftirminnilegar hvort sem þeir lásu þær í æsku eða með  sínum börnum á fullorðinsárum.

100 bestu barnabækurnar

Nú er ráð að athuga hvort að þessar bækur eru ekki kunnuglegar og jafnvel lesa þær sem kannski hafa gleymst. Einnig er ráð að lesa þær með börnum og gefa þannig góða minningu sem vafalaust endist ævilangt :-)

Hér má sjá listann í heild sinni:

LESUM SAMAN – LESTUR ER BESTUR!

100 íslenskar bækur sem þú verður líka að lesa - (116 reyndar...)

 

116 bestu bókmenntaverkin

 

Amtsbókasafnið valdi í maí 2011 alls 100 íslenskar bækur sem þú verður að lesa. Tilefnið var Bókasafnsdagurinn en safnið fékk kollega sína um allt land til aðstoðar. Þeir sendu inn tilnefningar að bókum sem Amtið tók svo saman og valdi úr.

Úr varð þessi skemmtilegi listi:

Plakat (PDF)

Sumarlesningin 2012

Í tilefni af bókasafnsdeginum og sumardeginum fyrsta tókum við hér á Amtsbókasafninu fram fjöldann allan af bókum sem starfsólkið okkar mælir með að allir lesi í sumar - Í fyrra var tekinn saman listi yfir 100 bestu íslensku bækurnar sem starfsfólk bókasafna mælir með að allir lesi. Í ár hefur verið tekinn saman listi yfir 100 bestu barnabækurnar að mati bókasafnsfólks. Allt yndilegar bækur sem flestir hafa lesið sjálfir eða fyrir börnin sín.
 

Sumarlestur 2012

Sumar þeirra bóka sem hér eru nefndar eru af fyrrgreindum listum, aðrar eru gömul eða ný eftirlæti okkar - Lesum og njótum :-)